Aðstoð vegna persónulegrar færni
Aðstoð vegna persónulegrar færni
Ákveðinn hluti nemenda þarf sérkennslu í hegðun eða stuðning vegna tilfinningalegra og félagslegra erfiðleika. Sérkennsla þessi er er veitt innan skólans eftir því sem kostur er og leitað eftir utanaðkomandi ráðgjöf ef þörf er á.
Kennslan fer fram í formi stakra kennslustunda, námskeiða fyrir einstaklinga eða hópa, eða sem fastar kennslustundir yfir lengri tímabil allt eftir því sem hentar hverju sinni.
Hegðunarver
Ef hegðun nemanda er með þeim hætti að ekki verður við unað í bekknum, getur kennari vísað honum í hegðunarver. Við upphaf dvalar í hegðunarveri er haldinn fundur með nemandanum og foreldri hans þar sem farið er yfir hversvegna þessu úrræði er beitt og hvernig það er skipulagt. Kennari leggur fram námsefni. Eftir það tekur sérkennari við og hjálpar nemandanum við vinnu sína. Við lok tímans/ dagsins hittast sömu aðilar aftur og meta hvernig hefur gengið og hvort nemandinn er tilbúinn að fara aftur í bekkinn. Dvöl í hegðunarveri getur ýmist náð yfir kennslustundir, frímínútur eða hvort tveggja allt eftir hegðun nemandans og getur verið endurtekin. Almennt gildir sú regla að dvöl í hegðunarveri er ekki lengri en einn dagur, yngri nemendur dvelja styttri tíma í verinu.
Vinna með tilfinningalega og félasglega þætti
Lögð er áhersla að aðstoða nemendur sem eiga við tilfinningalega og félagslega erfiðleika að stríða.
Aðstoð við þessa nemendur fer fram í tengslum við námsver og kallast almenn atferlisþjálfun.
Kennslan fer fram sem einstaklingskennsla eða hópkennsla eftir aðstæðum, í lengri eða skemmri tíma og fer ýmist fram inni í bekk eða í námsveri. Kennarar námsvers starfa í nánu samstarfi við deildarstjóra sérkennslu og umsjónarkennara vegna þeirra nemenda sem njóta þar þjónustu.
Námsefni er byggt á greiningum nemenda, niðurstöðum úr prófum eða ábendingum frá kennara og í fullri samvinnu við umsjónarkennara og deildarstjóra sérkennslu.
Aðstoð við þáttöku í námsferðum og félagslífi
Nemendur sem eiga við ýmsa erfiðleika að stríða eru oft viðkvæmari en aðrir nemendur þegar kemur að því að breyta út af daglegum venjum í skólastarfinu hvort sem það er vegna námsferða, félagslífs eða tímabundinna verkefna í skólastarfinu.
Sérstaklega er hugað að þessum nemendum. Umsjónarkennari og sérkennari hafa samvinnu um aðstoðina og skipulagningu hennar, útvega gögn, veita starfsfólki leiðbeiningar og styðja nemandann allt eftir þörfum hverju sinni.
Einnig er lögð áhersla á að undirbúa nemandann fyrirfram á þann hátt sem þurfa þykir.


