Skólareglur

Skólareglur

Skólareglur Grunnskóla Hornafjarðar

Skólareglur eru tskolahr-veb4il þess fallnar að auka öryggi nemenda starfsfólks og foreldra því þær setja ákveðinn ramma í samskiptum sem öllum ætti að vera ljós.  Þær eiga að auðvelda fólki að vita til hvers er ætlast og hvað gerist ef farið er út fyrir þennan ramma.  Þannig auka skólareglur líkurnar á því að börn fái að þroska hæfileika sína og njóta bernskunnar í öruggu umhverfi.  Starfsfólki skólans ber að leggja sig fram við að hjálpa nemendum til að fara eftir skólareglum, aðlagast þeim og njóta þess að ganga í skóla. Þannig  verður skólinn bæði uppeldis- og menntastofnun.

Skólinn er vinnustaður nemenda, kennara og annarra starfsmanna.  Þar hafa allir ákveðin réttindi en öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur. Í skólanum eiga allir rétt á því að þeim líði vel og fá tækifæri til að þroskast og læra á sínum forsendum.   Þar hafa líka allir þær skyldur að sýna öðrum kurteisi og tillitssemi svo þeir geti þroskast, lært og liðið vel innan um jafningja. 

Nemendur bera ábyrgð á eigin námi og framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri.  Nemendum bera að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks grunnskóla í öllu því sem skólann varðar. 

Almenn kurteisi, tillitssemi og virðing er grundvallarstefið í skólastarfinu.  Við gerum hinsvegar öll mistök og það er allt í lagi því við ætlum að læra af þeim.  Ef mistökin eru alvarleg þarf maður að taka afleiðingum þeirra en það er hluti af því að læra að bæta fyrir mistök sín. 

Í skólanum er unnið eftir uppbyggingarstefnunni (restitution) sem gengur út á að efla ábyrgð nemenda á eigin hegðun og framkomu og auka öryggi allra í samskiptum. Skólareglunum okkar skiptum við í tvennt, annars vegar almennar reglur og hinsvegar öryggisreglur.  


Almennar reglur

            Almennar reglur snúast um þau samskipti sem við eigum dags daglega og byggja á almennum siðareglum.  Að temja sér að fara eftir þessum reglum er hluti af því að þroskast og fullorðnast og verða ábyrgur þegn í lýðræðislegu samfélagi.   Því er eðlilegt að yngri börn þurfi meiri aðstoð við að temja sér þær en þau sem eldri eru.  Við fylgjum almennum reglum t.a.m. þegar;

  • Við sinnum hlutverki okkar
  • Við látum aðra í friði
  • Við komum fram af kurteisi og sýnum tillitssemi
  • Við berum ábyrgð á eigum okkar
  • Við berum ábyrgð á gerðum okkar  

Viðbrögð ef út af bregður

Ef nemandi brýtur almennar reglur leitar kennari orsaka þess m.a. með viðtölum við nemanda eða nemanda og foreldra hans.  Gerðar eru áætlanir um úrbætur og nemanda gefst tækifæri til að bæta fyrir brot án frekari viðurlaga.  Beri viðtöl og samræður við nemanda ekki árangur og telji kennari sig þurfa að grípa til frekari viðurlag gerir hann það í samráði við foreldra.  Ítrekuð brot á almennum reglum geta leitt til þess að nemandi þarf að taka afleiðingum gerða sinna líkt og um brot á öryggisreglu sé að ræða. 

Öryggisreglur

            Öryggisreglur snúast um að tryggja líkamlegt og andlegt öryggi allra í skólanum.  Ef þær eru brotnar er undantekningalaust gripið til viðurlaga í samræmi við aldur og þroska viðkomandi barns.   Öryggisreglur eru brotnar þegar öryggi er ógnað með ögrandi framkomu t.a.m. með

  • Andlegum eða líkamlegum meiðingum
  • Alvarlegum ögrunum eða hótunum
  • Notkun á tóbaki, áfengi eða öðrum vímuefnum
  • Vopnum eða ígildi þeirra
  • Þjófnaði
  • Skemmdarverkum
  • Áhættuhegðun

Viðbrögð ef út af bregður

Ef öryggisreglur eru brotnar er samstundis gripið til viðurlaga og er máli þá vísað til viðkomandi skólastjóra eða deildarstjóra.  Skólastjórnandi tekur ákvörðun um næstu skref. 

 

Við brot á öryggisreglum þarf nemandi alltaf að yfirgefa samnemendur sína í lengri eða skemmri tíma í samræmi við eðli og alvarleika brotsins.  Oftast þýðir þetta að nemandi þarf að vinna einsamall í einhvern tíma eða missir af frímínútum.  Lengd einverunnar fer eftir eðli og alvarleika brotsins og getur verið frá einum frímínútum eða einni kennslustund til þess að vera útilokaður frá því að vera með samnemendum sínum í tímum eða frímínútum í nokkra daga.  Teljist brotið alvarlegt getur skólastjórnandi gripið til þess ráðs að vísa nemanda heim til næsta dags eða lengur sé um mjög alvarlegt brot að ræða.  Ástæða þessa að nemandi þarf að yfirgefa samnemendur sína er fyrst og fremst sú að tryggja öryggi þeirra og gefa nemendum í heild skilaboð um mikilvægi þess að öryggi allra sé í heiðri haft. 

Mikilvægt er að vinna með brot á öryggisreglum þannig að barnið læri og þroskist af mistökum sínum.  Það er gert með aðferðum uppbyggingarstefnunnar þar sem rætt er við nemandann og hann hvattur til að koma með áætlun um úrbætur.  Áætlun um úrbætur ætti alltaf að vera skrifleg.  Til að byrja með fá nemendur aðstoð við að gera slíka áætlun en eftir því sem uppbyggingarstefnunni vex fiskur um hrygg aukast líkur á því að nemendur geti gert slíkar áætlanir hjálparlaust hafi þeir aldur og þroska til.  Foreldra fá alltaf upplýsingar brjóti barn þeirra öryggisreglur og sé um alvarlegt brot að ræða gera nemendur áætlun um úrbætur í samráði við foreldra sína. 



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica