Heilsueflandi skóli

Heilsueflandi skóli

 

Heilsueflandi skóli

Grunnskóli Hornafjarðar sótti um að gerast heilsueflandi skóli haustið 2010. Undirbúningur stóð yfir veturinn 2010 -2011 og hófst vinnan haustið 2011. Samtökin  Heilsueflandi skóli eru til í 43 Evrópulöndum og heldur Lýðheilsustöð utan um verkefnið á Íslandi.

 

Til hvers þarf heilsueflingu í skólann okkar?

Heilsufar og menntun eru nátengd fyrirbæri. Heilsa nemenda ræður miklu um hvort þeir komast yfirhöfuð í skólann og hvernigHjóla- og hjálmadagur hjá 6. bekk þeim gengur í náminu.
Skólinn er þess vegna kjörinn vettvangur til að hvetja til heilsueflingar og heilbrigðra lifnaðarhátta meðal barna á skólaaldri. Nær öll börn og unglingar á aldrinum 4 – 16 ára verja verulegum hluta tíma síns í skólanum. Á þessu skeiði ævinnar læra þau um holla lífshætti, öðlast margvíslega þekkingu og temja sér hátterni sem hefur áhrif á heilsu þeirra síðar á ævinni. Almennt má segja að sjónir manna beinist æ meira að skólunum því það eru menntastofnanir þar sem heilsuefling getur skipt verulegu máli.  Skólinn þarf að setja sér stefnu í heilsueflingarmálum þannig að kennarar, foreldrar, nemendur og aðrir sem taka þátt í skólastarfinu hafi í höndum traustar leiðbeiningar og geti gripið til aðgerða í þeim málum. 


Stýrihópur

Þeir sem sitja nú í stýrihóp fyrir heilsueflandi skóla eru Sævar Þór Gylfason íþróttakennari sem er í forsvari fyrir hópinn, Sigurborg J. Björnsdóttir íþróttakennari, Þórdís Þórsdóttir kennari og Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri.


Helstu áherslur verða eftirfarandi

Veturinn 2011-2012 verður áhersla á:
Hreyfingu öryggi – nemendur - Starfsmenn

Veturinn 2012-2013 verður áhersla á:
Nærsamfélagið – Heimili - Geðrækt

Veturinn 2013-2014 verður áhersla á:
Mataræði og tannheilsa - Lífsleikni


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica