Fréttir Grunnskóli
Heppuskóli
Heppuskóli

Fáðu já

30.01.2013

Í dag var nemendum í  7. – 10. bekk sýnd stuttmyndin Fáðu já og voru umræður í öllum bekkjum á eftir. Myndin er 20 mínútna löng og er liður í því að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis fyrir unglingum í grunnskólum landsins, vega upp á móti áhrifum kláms og klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.

Myndin var sýnd í hverjum árgangi fyrir sig í kynskiptum hópum því rannsóknir sýna að stúlkur og drengir eru með gerólíkan reynsluheim þegar kemur að umræðum um kynlíf og klám. Ákveðið var að sýna myndina alveg niður í 7. bekk því umræðan um hana er það mikil og hún er opin öllum á netinu www.faduja.is  að talið var betra að horfa á hana saman og bjóða upp á umræður fremur en nemendur væru að horfa á hana einir og sitja e.t.v. uppi með fullt af spurningum. Foreldrar eru hvattir til að horfa á myndina og ræða efni hennar við börnin sín. Bæði kennarar og foreldrar geta lent í þeirri aðstöðu að geta ekki svarað öllum spurningum og því bendum við hér á nokkra gagnlega vefi:

 Kynfræðsluvefurinn, fræðsluvefur Námsgagnastofnunar http://www1.nams.is/kyn/index.php

Unglingavefur Heilsugæslunnar; http://www.6h.is/  

Áttaviti Totalráðgjafar Reykjavíkurborgar: http://www.attavitinn.is/heilsa-og-utlit/kynlif

Ástráður félag læknanema: http://www.astradur.is/

http://www.fkb.is/Tenglar/  inn á þessum vef eru ýmsir fleiri tenglar sem tengjast efninu

 

Þessir vefir eru allir vandaðir og með réttum upplýsingum.  Ef spurningar koma sem snúa að ofbeldi og erfitt er að svara þá eru hér fleiri  gagnlegar vefslóðir:

                Blátt áfram, www.blattafram.is/

                Drekaslóð, fræðslu- og þjónustumiðstöð fyrir þolendur alls kyns ofbeldis og aðstandendur þeirra:  http://www.drekaslod.is/

                Stígamót: www.stigamot.is 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica