Fréttir Grunnskóli
jolabio_6
jolabio_6
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Jólabíó í Grunnskólanum

19.12.2012

Aðventan hefur verið skemmtilegur tími í skólastarfinu. Ýmislegt hefur verið í boði fyrir nemendur og starfsfólk m.a. jólasöngur í frímínútum og jólasveinadagur.

Síðasti kennsludagur fyrir jól var með hefðbundnu uppbroti þar sem nemendur Heppuskóla horfðu á jólamynd eða spiluðu á spil. Ekki var annað að sjá og heyra en að nemendur hefðu gaman af, og ekki skemmdi fyrir að fá að hafa með sér smá jólanammi og gos. Fimmtudaginn 20. desember eru síðan stofujól í Heppuskóla. Þá hittast nemendur með sínum umsjónarkennara og eiga ánægjulega samverustund.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica