Fréttir Grunnskóli
Bókakynning
Bókakynning
Anna Lára í 2. S hefur gaman af því að lesa og hún er dugleg að finna sér allskonar bækur til að lesa.

Ég er að lesa.....

18.12.2012

Anna Lára í 2. S hefur gaman af því að lesa. Nú í desember er hún að lesa bókina Grýla gamla og jólasveinarnir, nýjar grýlusögur handa 5- 9 ára börnum. Þessi bók er eftir Kristján Jóhannsson og er myndskreytt af Bjarna Jónssyni listmálara. Bókin var gefin út árið 1969 og sagði Anna Lára að hann Keli afi á Selfossi hefði gefið pabba hennar bókina og nú væri hún að lesa hana. Í bókinni er sagt frá ferð Grýlu til læknis í Hofsfökli. Hún sagðist líka oft fara í sveitina til ömmu og afa í Akurnesi og lesa í gömlum bókum. En uppáhaldsbók Önnu Láru er bókin Iðunn og eplin en þar er m.a. sagt frá Óðni með eitt auga og svo skemmtilega vill til að hún veit ástæðuna fyrir því að hann er eineygður því hún Eva Ósk myndmenntakennari er búin að segja henni söguna.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica