Við erum að lesa...
Vigdís María og Íris Mist í 5. E eru að lesa bækurnar Forngripasafnið, Náttúrugripasafnið og Listverkasafnið en þessar bækur eru eftir Sigrúnu Eldjárn en bækur hennar njóta mikilla vinsælda hjá nemendum skólans. Bækurnar fjalla um Rúnar sem er nýfluttur úr á land þar sem pabbi hans hefur tekið að sér að koma söfnum á bæjarins í gott lag. Fyrsta bókin er um uppsetningu á forngripasafninu en Rúnar og félagar hans Magga og Lilli lenda í margskonar ævintýrum á safninu. Vigdís og Íris voru sammála um að bækurnar væru skemmtilegar, spennandi og „pínu krípí“ en þegar maður er byrjaður að lesa þær þá er erfitt að hætta.


