Fréttir Grunnskóli
evropa-kynning2
evropa-kynning2
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Evrópulöndin kynnt hjá 7. bekk

01.12.2012

Nemendur í  7.bekk settu upp sýningu fyrir foreldra á afrakstri  þeirrar vinnu sem þeir höfðu unnið í landafræðitímum. Verkefnið gekk út á kynningu á Evrópulöndum í máli, myndum og munum. Sýningin var vel sótt af foreldrum og aðstandendum og stóðu nemendur sig vel í því að kynna Evrópulöndin sem þeir höfðu valið sér. Það er margt sem nemendur þurfa að takast á við þegar boðað er til svona sýningar. Útbúa bæklinga, PowerPoint kynningar og síðast en ekki síst munnlegar kynningar. Þannig að þegar upp er staðið þá er um fjölbreytt nám og námsleiðir að ræða.  

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica