Ljóð og smásögur á degi íslenskrar tungu
Hér birtist ljóðið Sumarlok eftir Berglindi Óttarsdóttur en hún vann fyrstu verðlaun í ljóða og smásagnakeppni Menningarmiðstöðvarinnar og Grunnskóla Hornafjarðar. Signý Ingvadóttir var kynnir og hélt utan um keppnina í skólanum.
Sumarlok
Stór spor, lítil spor
hvort sem þér líkar betur.
Hefur þú þá lítið þor
að fara út í vetur.
Lítil strákur stendur í fjörunni
og starir á hafið
með tárrvot augun og segir
vertu sæl sumarsól.
Fótsporin í fjörunni
Eru eftir litla strákinn
sem stóð þar
og horfði á hafið.


