Fréttir Grunnskóli
utivist
utivist
Í Hamarsfirði
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Kræklingur í skólanum!

23.10.2012

Nemendur í útivistar- og útimatreiðsluvali Grunnskóla Hornafjarðar lögðu land undir fót um daginn og skelltu sér austur í Hamarsfjörð.

Þóra, Brynja og Elsa fóru með hópnum. Tilgangur ferðarinnar var að tína krækling sem síðan yrði eldaður og snæddur. Veðrið lék við hópinn og komu allir sælir og ánægðir heim. Kræklingur var síðan soðin fyrir utan skólann og gátu krakkarnir gætt sér á kræsingunum. Ekki lögðu nú allir í það að smakka en þeir sem það gerðu voru bara ánægðir með kræklinginn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica