Fréttir Grunnskóli
Vikuhatid  6. H
Vikuhatid 6. H
Benjamín, Ívar, Ástrós, Dagur, Edda, Ingibjörg, Sara, Margrét, Kári, Hafdís, Hafsteinn, Auðunn, Sigursteinn, Einar Karl, Eyrún, Kristofer, Laufey og Kolbeinn.
Mynd 1 af 20
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

Fyrsta vikuhátíð vetrarins

12.10.2012

Í gær hélt 6. H fyrstu vikuhátíð vetrarins. Umstangið var mikið eins og verður gjarna þegar hátíðirnar eru haldnar. Nemendurnir sömdu  leikrit , dans og söngtexta og svo var æft í marga daga. Fyrstar á svið voru Stefanía og Konný en þær sýndu dans sem þær sömdu við lagið Starship. Oddleifur, Hafsteinn, Auðunn og Einar Karl sýndu töfrabrögð og til að tryggja að áhorfendur sæju sem best þá tóku þeir galdrana upp á myndband og sýndu á stóru tjaldi um leið og þeir framkvæmdu þá á sviðinu. Nokkrar stelpur í bekknum sömdu leikrit sem allir gátu fengið að taka þátt í. Leikritið heitir Jólaósk og fjallar um tvíburana Millu og Möllu sem  hitta jólasveininn og alla álfana hans á norðurpólnum. Bekkjar hljómsveitin Græna vespan sem er skipuð þeim Ívari, Hafsteini, Oddleifi, Kára,  Kristjáni Bjarka  og Einari Karli flutti lagið minning um mann og í lokin söng allur bekkurinn lagið Incomplete við texta Oddleifs, Kára, Hafsteins og Auðuns. Kristján Bjarki, Benjamín, Dagur, Laufey, Kristofer og Jóhann sáu um kynninguna á hátíðinni en Jóhann, Kolbeinn, Kári og Nanna voru sérstakir sviðs-, áhalda- og tæknistjórar.

hkg

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica