Haustfagnaður
Haustfagnaður var haldin s.l. fimmtudag í Sindrabæ þar sem nemendur í 8. – 10. bekk skemmtu sér saman. Nemendur í 9. bekk sjá um haustfagnaðinn og var ekkert til sparað hjá krökkunum þetta árið. Skemmtiatriði, skreytingar og tónlist voru eins og best verður á kosið og var ekki annað að sjá en að flestir skemmtu sér vel. Haustfagnaður er einn af mörgum viðburðum á skólaárinu sem krakkarnir sjá um og þegar allir leggjast á eitt þá verður útkoman glæsileg eins og nú varð raunin. Til hamingju krakkar með frábært kvöld.



