Fín föt, hattar og gleraugu
Bekkjarkvöld var haldið í vikunni hjá 7. bekk og tókst það í alla staði vel hjá krökkunum. Þema kvöldsins var "Fín föt, hattar og gleraugu".
Stelpurnar notuðu gærdaginn til þess að skreyta og vinna skemmtiatriði á meðan strákarnir tóku að sér bakkelsið og uppsetningu á veislusal.
Strákarnir komu með glæsilegar kökur sem hefðu eflaust dugað fyrir tvö bekkjarkvöld og stelpurnar sáu um tónlistina og skemmtiatriðin, sem mikil vinna hafði verið lögð í.
Umsjónarkennarar í 7. bekk þakka foreldrum kærlega fyrir hjálpina við að gera kvöldið svona glæsilegt.


