Fréttir Grunnskóli
Hornsílin, The Glaciers í Mannheim 2012
Hornsílin, The Glaciers í Mannheim 2012
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

Hornsílin, The Glaciers kominn heim

13.06.2012

Hornsílin eða The Glaciers eins og lególið Grunnskóla Hornafjarðar kallaði sig á erlendri grundu er nú komið heim úr mikilli ævintýraferð og allir sælir og glaðir.

Liðið tók þátt í opna First Lego league Evrópumótinu sem var haldið í  Mannheim í Þýskalandi dagana 6. til 9. júní.  Alls tóku 68 lið frá 35 löndum þátt í fjölbreyttri keppni og endaði liðið okkar í 30. sæti. Hópurinn vakti hvarvetna athygli og hélt merki Íslands og Hornafjarðar hátt á lofti.  Allir gerðu sitt besta og komu heim reynslunni ríkari. Liðið þakkar öllum þeim sem studdu það og styrktu í ferðinni.

Legókveðjur

Hornsílin, The Glaciers

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica