Fréttir Grunnskóli
UNICEF-hlaup vor 2012
UNICEF-hlaup vor 2012
Guðný Olga og Kasper
Mynd 10 af 14
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14

Unicef, hlaupið til góðs

29.05.2012

Í dag hlupu nemendur skólans hið árlega UNICEF hlaup. Fyrir helgi fóru áheitaumslögin heim og í dag koma krakkarnir með spjaldið sem sýnir hversu marga hringi var hlaupið. Umslögunum á að skila í skólann á morgun eða á fimmtudag.UNICEF var stofnað 1946  innan Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að veita neyðaraðstoð til barna innan Evrópu eftir seinni heimstyrjöldina. Samtökin fengu friðarverðlaun Nóbels árið 1965 fyrir að 'efla bræðralag milli þjóða'.  Verkefni samtakanna eru margvísleg og má sem dæmi nefna að á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu. Þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra . UNICEF kaupir árlega yfir 3.000 milljónir bóluefnisskammta. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljónum barna á ári hverju.  Lesa má um samtökin á heimasíðu þeirra unicef.is

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica