Fréttir Grunnskóli
Hjóla- og hjálmadagur hjá 6. bekk
Hjóla- og hjálmadagur hjá 6. bekk
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Reiðhjóladagaur Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Sjóvá.

25.05.2012

Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samstarfi við Sjóvá, hefur í vikunni verið að hitta krakka í 6. bekk grunnskóla landsins og fræða þau um notkun á reiðhjólahjálmum, skyldubúnað reiðhjóla og merkingu umferðarmerkja.

Nemendur í 6. bekk fengu þessa heimsókn í dag þar sem þau fengu þessa fræðslu, sett var upp hjólreiðaþraut sem krakkarnir spreyttu sig á og loks gafst þeim kostur á að vinna vinninga með því að svara nokkrum léttum spurningum.

Með þessum heimsóknum vilja Slysavarnafélagið Landsbjörg og Sjóvá leggja sitt af mörkum til að krakkar á þessum aldri noti hjálm og noti hann rétt. Oft á tíðum eru hjálmarnir ekki rétt stilltir og virka því ekki eins og skildi. Alvarlegustu reiðhjólaslysin eru höfuðáverkar og það er einfalt að lámarka hættuna með því að nota hjálm og stilla hann rétt. Það gildir bæði fyrir fullorðna og börn.

 

Við í skólanum þökkum kærlega fyrir þessa heimsókn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica