Gróður og róður
Á miðvikudaginn fór 6. bekkur á skógræktarsvæðið við Drápskletta og settu niður 420 plöntur undir dyggri leiðsögn Herdísar Harðardóttur frá Skógræktarfélagi Austur-Skaftafellssýslu. Í ferðinni var einnig Rannveig Einarsdóttir og fór hún með nemendur og sýndi þeim mismunandi grös, blóm og jurtir ásamt því að skoða trén sem settar voru niður fyrir 11 árum af þáverandi 6. bekkingum. Einnig leituðu þau að skordýrum á svæðinu. Þriðji áfangastaðurinn var Einarslundur þar tók Brynjólfur Brynjúlfsson á móti okkur og fræddi okkur um fuglalífið og starf fuglaáhugamanna á Hornafirði.
Eftir hádegi var svo haldið niður á bryggju þar sem nemendur fengu tilsögn í róðri og fóru stutta sjóferð á bátunum sem notaðir eru til keppni á sjómannadaginn



