Ungir og aldnir vinna saman
4. E í Grunnskólanum fór í heimsókn í Ekruna á síðasta þriðjudag og höfðu mjög gaman að. Eldri borgarar í dagvistinni kenndu krökkunum að búa til gjafakort eins og þau hafa gert um nokkuð skeið og fóru allir heim með kortin sín sælir og glaðir.
Krakkarnir voru mjög áhugasamir og viljum við þakka fyrir góðar móttökur.
Kveðja frá 4. E



