Fréttir Grunnskóli
Listahátíð 5 M
Listahátíð 5 M
Sigursteinn Örn, Auðunn, Malín og Laufey
Mynd 1 af 19
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19

Listahátíð 5. M

11.05.2012

Krakkarnir í 5. M hafa ekki setið auðum höndum í vetur . Fimmtudaginn 10. maí var foreldrum boðið að sjá afrakstur verkefna sem unnin hafa verið að í ýmsum greinum. 

Nemendur kynntu samfélagsfræðiverkefnið frá Róm til Þingvalla bæði í máli og myndum. Margar persónur mannkynssögunnar stigu á stokk og mátti heyra fleygar setningar og atburði sem hafa haft áhrif á gang sögunnar. Það mátti því sjá Júlíus Sesar, Kleópötru, Ingólf Arnarson, Guðrúnu Ósvífursdóttur og fleira gott fólk spranga um ganga Hafnarskóla. Heilagar Patrekur og Atli Húnakonungur létu einnig í sér heyra og fóru mikinn, þó svo Patrekur væri á mun friðsamlegri nótum en konungur Húna.

Til sýnis voru myndir sem nemendur gerðu í tengslum við þemaverkefni um mynstur í stærðfræði ásamt verkefni í nýsköpun.

Endursýnt var  leikritið Eigi fellur tré við fyrsta högg  eftir nemendur í  5. M en það  fjallar um hvernig hugarfarsbreyting og samábyrgð getur breitt framkomu við stúlku sem á undir högg að sækja. Leikritið var áður flutt á vikuhátíð í skólanum.

Síðast en ekki síst var gefin út ljóðabók með ljóð eftir nemendur en það er mörgum lagið innan þessa hóps að nota kveðskap sem túlkunarform.  Þeir sem hafa áhuga á að eignast eintak geta haft samband við umboðsmann listahópsins á netfangið magnhildur@hornafjordur.is.

Þetta var því menningarviðburður með frumsömdu og flest listform voru nýtt í túlkun og tjáningu.  Framtíðin er því björt hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar með þessa framtíðarlistamenn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica