Blátt áfram í heimsókn
Á mánudaginn fékk Grunnskóli Hornafjarðar góða heimsókn. Guðrún Helga Bjarnadóttir frá samtökunum Blátt áfram kom til okkar og hélt fyrirlestra fyrir nemendur í 5. – 10. bekk. Alls voru lífsleikni tímarnir 6 þar sem nemendum var skipt upp í hópa, eftir bekkjum og kyni.
Þegar Guðrún hafði rætt við allan þennan hóp af nemendum var komið að starfsfólki skólans sem sat þriggja tíma námskeið frá samtökunum. Nánar má fræðast um Blátt áfram á blattafram.is



