Fréttir Grunnskóli
Tonlist fyrir alla
Tonlist fyrir alla
Ægir og Sigurður
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

Tónlist fyrir alla

18.04.2012

Á mánudag fékk Grunnskóli Hornafjarðar heimsókan frá Tónlist fyrir alla sem er er sjálfstætt starfandi stofnun en rekin á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Dagskráin sem var flutt nefnist “Raddir þjóðar” en þar var tónlistararfur þjóðarinnar tekinn til skoðunar á nýstárlegan hátt. Nemendurnir fengu að heyra gamlar söngupptökur sem varðveittar eru á Stofnun Árna Magnússonar og Þjóðminjasafni Íslands, leiknar af geisladiski og tölvu samhliða hljóðfæraleik, söng og töluðu máli tónlistarmannanna. Meðal annars þá lærðum við að dúlla í anda Gvends dúllara, sungum móðir mín í kví kví og hlustuðum í vísurnar Hani, krummi, hundur, svín í mismunandi útgáfum. Má hér nefna að tónlistarmennirnir, þeir Sigurður Flosason og Pétur Grétarsson voru tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í fyrir þessa dagskrá.


Nokkur orð um Tónlist fyrir alla.

Upphaf skólatónleika á Íslandi má rekja aftur til ársins 1994, þegar íslensku þjóðinni barst peningagjöf frá Norðmönnum í tilefni af lýðveldisafmæli Íslands arið 1994 og skyldu þessir fjármunir notaðir til að efla tónlistar- og menningarstarf í grunnskólum á Íslandi.
Allt frá árinu 1995 hefur verði staðið fyrir tónleikum á grunnskólum landsins þar sem boðið er upp á vandaða skólatónleika fyrir börn þar sem skemmtun og menntun haldast í hendur.
Leitast er við að bjóða upp á fjölbreytta tónlist í hæsta gæðaflokki í flutningi atvinnutónlistarfólks. Upplifun barnanna af tónleikunum er lykilatriði og áhersla er lögð á að hún verði sem allra best.
Á hverri önn eru flestir grunnskólar landsins þátttakendur í þessu verkefni og eru á hverju ári um 150 - 200 tónleikar haldnir í um 130 skólum.


Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica