Matreiðslukeppni 2012
Þann 12. mars s.l. var haldin matreiðslukeppni í grunnskólanum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk.
Nemendur kepptu tveir til þrír saman og var keppnin haldin í heimilisfræðistofu skólans. Sigurvegarar urðu þau Ragnar Magnús Þorsteinsson, Alrún Irene Stephensdóttir og Heiðdís Anna Marteinsdóttir. Það er alveg ljóst, að lokinni þessari keppni, að þetta sveitarfélag á ekki eftir að verða uppiskroppa með matreiðslumenn í náinni framtíð. Nemendur göldruðu fram dýrindis rétti og var augljóst á dómurunum að kunnátta krakkanna kom þeim skemmtilega á óvart. Gaman var að sjá þann áhuga og metnað sem krakkarnir lögðu í verkefnið og voru þau sér og sínum til mikils sóma. Umsjónarmaður keppninnar var Kristján Guðnason og fékk hann til liðs við sig úrvalsmenn til að setjast í dómarasætin. Dómarar voru: Gísli Már Vilhjálmsson, Ingólfur Einarsson, Jón Sölvi Ólafsson og Halldór Halldórsson.



