Brúum bilið
Nýtt form hefur verið tekið upp á svokölluðum vorskóla sem hugsað hefur verið sem aðlögun leikskólabarna að grunnskóladvöl sinni.
Verðandi 1. bekkingar næsta skólaárs koma nú með reglulegu millibili í skólann. Þau mæta með starfsmönnum leikskólanna kl. 09:30 og fara í frímínútur með öðrum nemendum skólans. Eftir þær fara börnin inn í kennslustund og fara svo aftur í leikskólana kl. 11:10. Í fyrstu heimsókn sinni var þeim skipt í tvo hópa þar sem þau unnu ýmis skólatengd verkefni. Í heimsókn númer tvö blönduðust þau núverandi 1. bekk og héldu áfram að vinna margvísleg og skemmtileg skólaverkefni. Næstu heimsóknir eru fyrir hugaðar 12. mars, 25. apríl og 11. maí.
Mikil tilhlökkun hefur verið meðal nemenda skólans yfir þessum heimsóknum sem hafa gengið mjög vel.



