Arna Ósk hlaut verðlaun í jólagetraun slökkviliðsins
Í síðustu viku var dregið í slökkviliðsgetraun sem börnin í 3. HS tóku þátt í fyrir jól.
Öll börn á landinu, fædd 2003, tóku þátt í þessari getraun og ein stúlka í bekknum var svo heppin að nafnið hennar var dregið út. Þessi heppna stúlka heitir Arna Ósk Arnarsdóttir. Nemendur og kennarar í 3. bekk skunduðu upp á slökkvistöð síðasta föstudag (daginn fyrir 112 daginn) og skoðuðu bílana og fylgdust með þegar Arna Ósk tók á móti vinningnum sínum



