Fréttir Grunnskóli
Leggur og skel 06
Leggur og skel 06
Steindór og Júlíus
Mynd 8 af 19
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19

Leggur og skel

13.02.2012

4. bekkur er að byrja á námsefni sem heitir Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti en þar er fjallað um líf og störf fólks á Íslandi fyrr á öldum.

Námsefnið er byggt í kringum gömlu mánaðarheitin og farið í gegnum þau störf sem unnin voru eftir árstíðum, sérstaklega til sveita og inn í efnið fléttast ljóð, þjóðsögur og fleira. Við munum heimsækja dagvist aldraðra í nokkur skipti og sækja í þeirra þekkingarbrunn og einnig fengum við send frá Þjóðminjasafni Íslands leikföng frá gömlum tíma, horn, leggi, skeljar og fleira. Krakkarnir fengu að leika sér að gullum og var ekki annað að sjá en að þessi leikföng ættu ennþá fullt erindi því þeir voru fljótir að gleyma sér við búleikinn.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica