Nýsköpunarkeppni grunnskóla
Dagana 16. - 19. september fara fram úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskóla. Fjörutíu og fjórir krakkar komust í úrslit, þar af fjórir úr Grunnskóla Hornafjarðar. Að þessu sinni bárust 1600 hugmyndir allstaðar af landinu svo að Hornfirðingar mega vera sáttir við sinn hlut. Dagana 16. og 17. september vinna krakkarnir að verkefnum sýnum, búa til líkan og veggspjald til að kynna hugmyndina. Sunnudaginn 19. september verður svo lokahóf í húsi Marels í Garðabæ en þar afhendir forseti Íslands verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar.
Krakkarnir sem fara héðan í vinnusmiðjur eru:
Arndís Ósk Magnúsdóttir 5. bekk
Jóel Ingason 6. bekk
Guðrún Kristín Stefánsdóttir 9. bekk
Una Guðjónsdóttir 9. bekk
Við óskum þeim góðs gengis



