Fréttir Grunnskóli
nemendarað 2010
Nemendarad-030-vef
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Nemendaráð og Miðgarðsráð

10.09.2010

Í tengslum við haustfagnað nemenda á unglingastigi var kosið í nemendaráð skólans og Miðgarðsráð.  Auk þess sem bekkjarkvöld var hjá 7. bekk og haustfagnaður hjá 8. - 10. bekk þá tóku unglingarnir forskot á sæluna og fóru í spil og leiki í síðast tíma dagsins.  Það er spurning hvort brenniboltaæði hafi gripið um sig hjá öllum bæjarbúum því rúmlega 100 nemendur völdu brennibolta en frést hefur af gríðar mikilli mætingu á brenniboltaæfingar hjá kvenfólki bæjarins. 

Í nemendaráði verða eftirfarandi fulltrúar veturinn 2010 -2011

Frá 7. bekk þau Sigrún Salka Hermannsdóttir og Tómas Leó Ásgeirsson.

Frá 8. bekk þeir Þorkell Ragnar Grétarsson og Hafþór Snorrason

Frá 9. bekk þau Darri Snær Nökkvason og Heiðdís Anna Marteinsdóttir

Frá 10. bekk þeir Felix Þór Gíslason og Tómas Ásgeirsson.

 

Í Miðgarðsráði verða eftirfarandi fulltrúar veturinn 2010 - 2011

8. bekkur þau Hafþór Snorrason og Anna Birna Elvarsdóttir

9. bekkur þau Ragnar Magnús Þorsteinsson og Alexander Snær Stefánsson

10. bekkur þau Ingvi Þór Sigurðsson og Dóra Björg Björnsdóttir.

 

Lögð verður áhersla á samstarf þessar tveggja ráða í vetur.  Þau munu saman halda utan um stærstu viðburði vetrarins en þess utan einbeita sér að sitthvorum þættinu.  Helstu áherlsuþættir hvors ráðs um sig verða;

 

Hlutverk fulltrúa í Nemendaráði

¢Stuðla að góðum skólabrag
¢Vera rödd nemenda í hagsmunamálum þeirra
¢Vera jákvæðir og hvetjandi í almennu skólastarfi
¢Vera lausnamiðaðir í vinnu
¢Vera virkir í samskiptum og góð fyrirmynd
¢Halda utan um félagslíf nemenda í frímínútum og á skólatíma
¢Vera tilbúin að nota hluta af frítíma sínum í starfið
 
 
Hlutverk fulltrúa í Miðgarðsráði
¢Skipuleggja félagsstarf innan Miðgarðs
¢Að efla félagslíf nemenda í 8. – 10. bekk og gera það eftirsóknarvert og áberandi
¢Hvetja samnemendur til að mæta á viðburði s.s. með auglýsingum og fl.
¢Skipuleggja viðburði og klúbbastarf
¢Vera hugmyndarík
¢Vinna sjálfstætt
¢Vera tilbúin að nota hluta af frítíma sínum í starfið

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica