Fréttir Grunnskóli
Matreidslukeppni-020-vef
Matreidslukeppni-020-vef
Sigurliðið
Mynd 10 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Matreiðslukeppni grunnskólans

20.05.2010

Í gær fór fram matreiðslukeppni 9. og 10. bekkinga í skólanum.  Fimm lið mættu til keppni og var hörð barátta um hvert stig.  Keppendur áttu að elda forrétt þar sem uppistaðan var humar, aðalrétt þar sem uppistaðan var bleikja og eftirrétt að eigin vali.  Það voru svo sannarlega girnilegir réttir sem voru bornir á borð og erfitt fyrir dómarana að gera upp á milli liðanna. 

Það voru þó þau Finnur Ingi Jónsson, Lukka Óðinsdóttir og Tómas Ásgeirsson sem báru sigur úr bítum.  Í öðru sæti urðu Alexander Alvin Einarsson, Felix Þór Gíslason og Þorgeir Dan Þórarinsson og í þriðja sæti María Birkisdóttir, Sandra Björg Gunnarsdóttir og Þorkell Óskar Vignisson. 

Dómararnir voru alkunnir kokkar úr héraði þeir Halldór Halldórsson, Ingólfur Guðnason og Jón Sölvi Ólafsson.  Verðlaunin voru vegleg en þau gáfu Hótel Höfn, Víkin og Kaffi Hornið.  Auk þess gaf Halldór öllum keppendum mateiðslubókina sína Réttir úr ríki Vatnajökuls.  Umsjónarmaður keppninnar var Kristján Guðnason. 

Þetta var frábær keppni sem vonandi verður árlegur viðburður hér eftir og þakkar skólinn keppendum, dómurum, umsjónarmanni og þeim sem gáfu verðlaunin kærlega fyrir þeirra framgöngu og stuðning.  

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica