Fréttir Grunnskóli
Hreinsunardagur-23.-mai-013-vef
Hreinsunardagur-23.-mai-013-vef
Yfirleitt er mikið af rusli í nágrenni við íþróttasvæðið þar sem girðingin stoppar það sem fýkur.
Mynd 5 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Hreinsunardagur í grunnskólanum

23.04.2010

Í morgun (föstudag) fóru nemendur og starfsmenn skólans út af örkinni og hreinsuðu bæinn þ.e. fyrir utan þann hluta sem útskriftarhóp FAS hafði verið úthlutað. Þeir tíndu rusl úr beðum, hreinsuðu fjörur, götur og öll opin svæði. Mikið rusl var í bænum og sem dæmi má nefna að í Óslandinu voru fylltir milli 10 og 15 ruslapokar.  Í lokin var svo slegið upp heljarinnar grillveislu við Hafnarskóla. 

Með því að hreinsa bæinn er unnið með lýðræðishugmyndina og þá ábyrgð sem við berum á því samfélagi sem við búum í.  Samfélagið okkar og bærinn okkar verður aldrei betri en fólkið sem býr þar.  Við búum hér og viljum hafa bæinn hreinan og fínan, viljið þið það ekki líka?

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica