Fréttir Grunnskóli
Saevar-Orn-med-svaka-eld-2
Saevar-Orn-med-svaka-eld-2
Sævar Örn átti ekki í nokkrum erfiðleikum með eldinn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Götuleikhús

21.04.2010

Götuleikhúshópurinn í 9. og 10. bekk stefnir á að sýna listir sínar á skólaslitunum í vor en í hópnum eru krakkar sem eru í leiklistarsmiðju á þessu tímabili. Undirbúningurinn felst í að æfa sig í ýmsum brellum og brögðum og nú erum við t.d. að æfa okkur með eldinn Það er gert með strangri leiðsögn og æfingum sem byrja á því að spúa vatni upp í loftið áður en farið er í alvöruna. Eins og myndirnar bera með sér eru efnilegir menn á ferð? Enginn fær þó að blása nema hann hafi leyfi foreldra og allir verða að sýna fyllstu aðgætni í meðförum eldsins. Síðan er að sjálfsögðu stultufólk í götuleikhúsinu og vonandi tekst okkur að koma fleirum í gervi og hafa gaman af.  En eins og með margt annað þá er sumum eðlilegra að spúa eldi og ganga á stultum en öðrum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica