Fréttir Grunnskóli
Árshátíð 2010
Arshatid-069-vef
Sjöundi bekkingar sungu Eitt lag enn og Ævintýri.
Mynd 4 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Flestir hlæja a ha ha ha ha

26.03.2010

Árshátíð grunnskólans var í gærkvöldi og heppnaðist að flestra mati vel.  Þetta er í fyrsta skipti sem hún er haldin í íþróttahúsinu en salurinn var afar hátíðlegur með nýju drapperingunum og gulum brosköllum.  Þema hátíðarinnar voru lög og textar eftir Ómar Ragnarsson og var lokalagið hláturinn lengir lífið þar sem allir nemendur tóku hraustlega undir.  Nemendur í oddatölubekkjunum sáu um skemmtiatriðin en nemendur í hinum bekkjunum sáu um skreytingar, veitingar og annað sem þurfti til að árshátíðin væri sem veglegust.  

Um leið og starfsfólk þakkar foreldrum og öðrum gestum fyrir komuna þá óskum við Hornfirðingum öllum gleðilegra páska.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica