Ferð út að Horni
Í dag og í gær fóru allir nemendur grunnskólans í ferð út að Horni að skoða víkingabæinn sem hefur verið byggður þar. Blíðskapar veður var og virkilega gaman að sjá hvernig forfeður okkar hafa átt að búa. Fyrir flesta var þetta eins og að stíga inn í ævintýraheim en eins og flestir vita stendur til að kvikmynda þarna síðar á árinu og verður gaman að sjá afraksturinn.
Á leiðinni til baka var gengið um Litla Skarð milli Rustanafar og Litla Horns.



