Fréttir Grunnskóli
Allir-med-a-prjonunum-001
Allir-med-a-prjonunum-001
Mynd 1 af 3
1 2 3

Prjónakvöld hjá starfsfólki grunnskólans

12.02.2010

Á dögunum var boðað til svokallaðs prjónakvölds hjá starfsfólki grunnskólans.  Þar mættu rúmlega tuttugu starfsmenn með það sem þeir höfðu á prjónunum en það var æði misjafnt.  Sumir prjónuðu, einhverjir saumuðu út, heklunál var á lofti og svo var orkerað.  Orkering er handavinna þar sem sérstök nál er notuð til að búa til t.d. dúka og sem dæmi má nefna að blúndan á peysufötum er orkeruð. 

Eins og í sönnum saumaklúbbi vantaði ekki veitingar og víst að allir áttu góða kvöldstund. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica