Förðun og tíska
Stúlkur í valáfanganum Förðun og tíska komu saman s.l. þriðjudagskvöld og héldu kynningar um förðun og tísku mismunandi tímabila.
Skólastofan var þéttsetin enda buðu þær mæðrum sínum, vinkonum, ömmum eða systrum með. Stúlkurnar voru glæsilegar eins og sjá má á meðfylgjandi myndasafni og var kvöldið hið skemmtilegasta. Þær buðu gestum upp á heimabakaðar kökur og kaffi, auk greiningar fyrir gesti á höfuðlagi og hvaða árstíð þeir tilheyra. Þetta var lokapunktur þessa valáfanga, en boðið verður upp á framhald eftir áramót.



