Fréttir Grunnskóli
Hlaturjoga-003-vef
Hláturjóga
Það er gott að ímynda sér að maður sé ljón
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

Hlæjum til að gera lífið léttara!

Hláturjóga í skólanum

12.11.2009

Síðustu morgna hefur Valgerður Snæland komið í Heppuskóla og verið með hláturjóga kl. 7:30 á morgnana.  Nemendum, starfsmönnum og foreldrum er velkomið að mæta og prófa hláturjógað sem svo sannarlega gefur gleði og hlátur inn í daginn og endist allan daginn.  Dágóður hópur hefur mætt og flestum líkað vel og komið aftur. 

Hláturjógað kemur á skemmtilegum tíma inn í skólastarfið því nú erum við einmitt að vinna með skólabragin og tökum m.a. fyrir hugtök sem hafa áhrif á samskipti okkar og líða.  Í þessari viku vinnum við með hugtakið "jákvæðni" og í næstu viku verður það "tillitssemi".

Einnig passar hláturjógað vel inn í uppeldi til ábyrgðar ekki síst fyrir þá sem hafa ríka ánægjuþörf en það væri tilvalið fyrir þá og reyndar alla aðra að hlú að ánægjuþörfinni með því að hlæja svolítið í morgunsárið. 

24. - 27. nóvember ætlar Valgerður að vera með hláturjógað í Hafnarskóla. 

- Vantar þig að hlæja meira - hafa meiri gleði í lífi þínu?
* hláturjóga losar um streitu og kvíða
* hláturjóga er þjálfun fyrir líkama,huga og sál
* hláturjóga styrkir jákvæða lífssýn og leysir upp neikvæðni
* hláturjóga eflir eldmóð og ást á lífinu
* hláturjóga hreinsar út spennu og styrkir innri líffærin
* hláturjóga eykur súrefnisupptöku líkamans og gefur þér aukinn kraft
* hláturjóga styrkir ónæmiskerfið

Verum sterk í lífsins ólgusjó - Hlæjum meira!
Er langt síðan þú hefur hlegið innilega?
Fólk sem stundar hláturjóga verður jákvæðara gagnvart sjálfu sér og öðrum. Þegar við erum búin að hlæja í smátíma líður okkur svo vel og allir sem taka þátt finna strax fyrir áhrifunum. Fólk fer að hugsa jákvætt og dregur jákvæða atburði til sín.

- Mikil heilun fer í gang og lífið verður mun skemmtilegra á eftir!
Hláturjóga er aðferð sem þróuð var af indverska lækninum Dr. Madan Kataria og Madhuri Kataria, konunni hans sem er jógakennari. Í hláturjóga er farið í jógastöður, kraftmikla öndun og léttar æfingar sem framkalla hlátur í hópnum án tilefnis. Þú þarft ekki að vera hláturmild/ur til að stunda hláturjóga því æfingarnar opna fyrir hláturinn á eðlilegan hátt.

Lífið verður mun léttara eftir tímann í hláturjóga, við bíðum ekki eftir því að það verði léttara til að hlæja. Betra er að hlæja til að gera lífið léttara!

Vendu þig á að fara í hláturjóga einu sinni í viku, til að styrkja jákvæð viðhorf til lífsins og um leið að hreinsa orkuna þína!
- Það er ekki hægt að vera neikvæður eftir hláturjóga, allt verður svo miklu léttara, heilun verður í líkama og sál.


Í hláturjóga bregst líkaminn vel við æfingunum og eykur framleiðslu á gleðihormónum. Jákvæð áhrif á líkamann verða kraftmikil og nærandi á allan hátt.
Að stunda hláturjóga er því hollt fyrir líkama og sál og hin besta skemmtun um leið.
Við eigum öll skilið að vera hamingjusöm. Þú líka! PRÓFAÐU NÝTT OG VERTU MEÐ!
 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica