Gengið í skólann
Nú er verkefninu Göngum í skólann lokið en það stóð frá 9. september til 9. október. Þetta verkefni gekk mjög vel og mikil þátttaka var bæði hjá nemendum og starfsmönnum. Eina vikuna fórum við í smá keppni þar sem við skráðum hjá okkur hverjir gengu eða hjóluðu í skólann og voru verðlaun í boði. Gullskóinn hlutu 6. S og 4. R með 100% þátttöku, silfurskóinn hlutu 5. bekkirnir með 99% en þeir voru saman með skráningu og bronsskóinn hlaut 4. H. með 97,2%. Aðrir bekkir stóðu sig einnig mjög vel.
Við vonum svo að sem flestir gangi áfram í skólann í vetur, sérstaklega þegar veðrið er gott og þar sem nú er farið að skyggja á morgnana þá minnum við á endurskinsmerkin.



