Vorið er komið og grundirnar ....
Vorferðir og uppákomur einkenna iðulega starf skólans í maímánuði. Ekki hefur verið gerð nein undantekning á þessu nú og hafa nemendur og starfsmenn skólans verið á faraldsfæti undanfarið. 7. bekkur er nýkominn frá Vestmannaeyjum og 10. bekkur var uppi á jökli. En ýmislegt hefur verið gert sér til gamans með öðrum nemendum skólans. Mánudaginn 25. maí var allsherjar íþróttadagur þar sem farið var í ratleik sem teygði sig út um allan bæ. Nemendur þurftu að leysa ýmsar gátur á hverri stöð. Þriðjudaginn 26. maí skellti 4. til 9. bekkur sér inn í Svínafell, þar sem gengið var í kringum fellið eða Göltinn. Blíðskaparveður var og skartaði landið sínu fegursta.
4. bekkur fór inn í Geitafell 27. maí, var í blíðskaparveðri um morguninn en lenti í hagléli og rigningu upp úr hádegi. Það má búast við öllu á Íslandi. 5. bekkur var í Ingólfshöfða og lenti þar í dásamlegu veðri. 6. bekkur gróðursetti plöntur inn við Drápskletta, fór í fuglaskoðun og fræddist um gróðurinn. Síðan var farið í róður á árabátum í höfninni. Dagurinn endaði á því að allir fengu sér ís.
Nesjaskólakrakkarnir skoðuðu fugla, þau fóru á mánudag í göngu inn í Endalausadal, og lentu í góðu veðri.
Á fimmtudaginn komu nemendurnir sem hefja eiga nám í 6. ára bekk í haust í heimsókn, og var það sérstaklega ánægjuleg stund.



