Fréttir Grunnskóli
danaveldi vef 1
danaveldi vef 1
Klakarnir fyrir framan kynningarbásinn sinn í Bella Center
Mynd 1 af 2
1 2

Ferðasaga Klakanna

06.05.2009

Fimmtudagur  30. apríl: Við hittumst á flugvellinum um fimm leytið, tékkuðum okkur inn og röltum svo í fríhöfninni, fengum okkur að borða og stigum svo um borð.  Við lentum  í Danmörk um hádegisbil  í mjög góðu veðri. Komum okkur fyrir á hótelinu og ákváðum svo að rölta í góða veðrinu niður Strikið, skoðuðum Nýhöfn eftir að við gengum yfir Strikið. Hvíldum okkur svo fyrir spennandi morgundag.

Föstudagur 1. maí: Fórum um tíuleytið á vísindasafn, og skoðuðum þar marga skrýtna og skemmtilega hluti. Eftir það var okkur keyrt að litlu hafmeyjunni, og fórum svo í siglingu þar um kring. Fórum í Bella Center að setja upp pittinn okkar. Svo áður en við fórum upp á hótel var prufurkeyrt brautirnar svo allt væri klárt fyrir keppnisdaginn.

Laugardagur 2. maí: Já,keppnin var hafin fyrir alvöru, fyrstu keppendur í þrautabraut róbótsins voru Darri og Þorsteinn,  þetta fór allt mjög vel og má með sanni segja að þeir hafi staðið sig vel með útkomuna 105 stig. Svo var bara rokið beint í rannsóknarverkefnið, það gekk líka mjög vel dómararnir höfðu lítið til að spurja um en það voru nokkrar spurningar. Svo var bara að bíða eftir næstu róbót-keppni, en það voru þeir Ragnar og Marteinn þeir stóðu sig líka mjög vel og með heil 195 stig. Eftir  allar keppnirnar fyrri daginn fórum við uppá hótel fyrir kvöldvökuna, en köldvakan var í mjög stórri íþróttahöll, við sáum klappstýrur, krakka á einhjóli og breikara. Eftir sýninguna var hægt að gera ýmislegt , við skelltum okkur öll í fótlboltaspils-hoppukastala öll 10 saman.   Svo var bara komin tími til þess að fara heim og hvíla sig fyrir lokadaginn.   

                                                                           

Sunnudagur 3. maí: Jæja, þá var komið að lokadegi kepninnar, og aðeins ein róbótakeppni eftir og Hönnun og forritun róbóts. Síðustu róbótarnir voru þeir Jóhann og Agnar, þeir stóðu sig mjög vel með hvorki meira né minna en 205 stig. Svo var farið í Hönnun og forritun róbóts en það gengur út á það að sýna dómurum af hverju er róbótinn svona en ekki hinsegin, eða af hverju er hann með svona forrit og jafnvel af hverju lítur hann svona út en ekki stærri eða minni. Að lokum var svo lokaathöfn, mörg verðlaun voru veitt og til ýmissa þjóða, en sigurvegarnir voru NXT Generation frá Danmörk. Svo eftir keppni fóru flestir í Ripleys belive it or not,  það var mjög fjörugt.

 

Mánudagur  4.maí: Flestir voru komnir út um tíu leitið, flestir  fóru í Guinnes World Records um hálf ellefu,  það var líka mjög skemmtilegt. En eftir það hittumst við öll við Nýtorg því við ætluðum að sjá vaktaskipti, svo eltum við verðina að Amalíuborg, það var mjög flott og hátíðlegt vegna þess að það fæddist prins daginn áður. Eftir Amalíuborg röltum við í Sívala turninn það var mjög flott þar uppi rosa flott útsýni yfir alla Kaupmannahöfn. Eftir Sívala turninn löbbuðum við upp götuna þar sem heimavist margra Íslendinga var. Svo hittumst við öll um  fjögur leytið á hótelinu þaðan sem leiðin lá í Tívolíið. Í tívolíinu var mjög skemmtilegt , flestir prófuðu nærri því öll tækin. Svo fórum við heim úr tívolíinu um klukkan ellefu.

Þriðjudagur  5.maí: Þá var komið að því að fara heim, allir voru búnir að pakka niður og tilbúnir til að fara um hálf tíu, það biðu okkar þrír leigubílar sem keyrðu okkur á flugvöllinn, við röltum aðeins um í fríhöfninni  fyrir flugið svo flugum við út á dönskum tíma kl; 13:15.

Okkur fannst öllum mjög skemmtilegt og reynsluríkt ferðalag, og viljum þakka öllum Íslendingum fyrir þá athygli og hjálp sem við höfum fengið.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica