Dans í Grunnskólanum
Danssýning á föstudaginn í Íþróttahúsinu á Höfn kl. 13:00
Nú stendur yfir dansvika í Grunnskólanum og á milli þess sem nemendur æfa atriði fyrir árshátíðina og búa til skreytingar þá dansa þau af miklum krafti.
Nú eru allir nemendur í 1. - 7. bekk í dansi og á unglingastiginu þar sem dans er val þar eru 55 nemendur í dansi. Á föstudaginn 27. mars kl. 13:00 verður svo danssýning í Íþróttahúsinu á Höfn þar sem allir nemendur sem eru í dansi sýna hvað þeir hafa verið að læra. Foreldrar og nánustu aðstandendur eru hvattir til að mæta á danssýninguna og hvetja þar með börnin sín til dáða.


