Fréttir Grunnskóli
halldor og roslin vef
halldor og roslin vef
Halldór og Róslín á æfingu
Mynd 2 af 3
1 2 3

Leikhópurinn Lopi með frábærar sýningar

12.03.2009

Í gærkvöldi frumsýndi leikhópurinn Lopi tvö af leikverkum Þjóðleiks, Ísvélina eftir Bjarna Jónsson og Dúkulísu eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.  Það er ekki ofsögum sagt að þarna hafi verið á ferðinni tvö frábær leikrit sem leikararnir skiluðu af sér með mikilli prýði.   Ísvélin gerist í ísbúð þar sem ráða þarf nýjan starfsmann í miðri kreppunni og þurfa umsækjendur að fara í viðtal og sýna hvers þeir eru megnugir áður en þeir eru ráðnir.   Í verkinu er tekist á við siðferðilegar spurningar um leið og stutt er í glettnina og gálgahúmorinn.  Hið sama er upp á teningnum í Dúkkulísu.  Það verk fjallar um 15 ára par sem nýverið hefur eignast barn og misjafna aðkomu kynjanna og unglinga almennt að þeim málum.  Að öllum öðrum ólöstuðum þá fóru þau Róslín Alma Valdemarsdóttir og Halldór Karl Þórsson afar vel með aðalhlutverkin í Dúkkulísu og urðu persónurnar bæði trúverðugar og áhrifamiklar.  Almennt skiluðu leikarar hlutverkum sínum með mikilli prýði og vil ég hvetja sem flesta Hornfirðinga til að fara inn í Mánagarð og sjá þessar sýningar.  Magnús J. Magnússon hefur enn einu sinni gert kraftaverk með krökkunum okkar sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara.  Þau eru búin að leggja mikla vinnu á sig við æfingar og eiga það svo sannarlega skilið að við förum og horfum á þau. 

Sýningin tekur um 80 mínútur með hléi og kostar 1500 kr inn fyrir fullorðna en 1000 kr fyrir börn og alla nemendur Grunnskólans.  Það verða ekki sérstakar skólasýningar að þessu sinni heldur hvetjum við foreldra til að fara með börnum sínum og sjá þessi stórskemmtilegu leikrit.   Næsta sýning er í kvöld kl. 20:00 og svo á mánudaginn kl. 20:00

Það ætti engum að þurfa að leiðast í Mánagarði á Ísvélinni eða Dúkkulísunum.

Eins og fram hefur komið eru þessi leikrit tvö af þremur leikritum sem Þjóðleikur stendur fyrir á þessu vori en Þjóleikur er tilraunaverkefni á vegum Þjóðleikhússins, styrkt af ýmsum aðilum. 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica