Mugison í Grunnskólanum
Það var mikið blúsað í Grunnskólanum í dag þegar Mugison heimsótti alla skólana og spilaði og söng fyrir krakkana. Þessi frábæri íslenski tónlistarmaður vann hug og hjörtu flestra nemenda og nokkrir þeirra fengu meira að segja að spila blús fyrir hann.
Það er ómetanlegt fyrir nemendur Grunnskólans að fá með þessu móti að taka virkan þátt í blúshátíðinni sem vonandi á eftir að vera ógleymanlega.



