Fréttir Grunnskóli
6._nov_2008_048vefur
6._nov_2008_048vefur
Guðmundur Einar, Gísli Eysteinn, Drífa, Kolbrún og Júlían
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

Forvarnardagurinn 2008

07.11.2008

Í gær fimmtudaginn 6. nóvember tóku 9. bekkir Grunnskóla Hornafjarðar þátt í forvarnardeginum. Dagurinn er á vegum UMFÍ, ÍSÍ og Bandalags íslenskra skáta og ætlaður fyrir 9. bekki grunnskóla.
Nemendurnir byrjuðu á því að horfa á myndband sem gefið er út í tilefni dagsins þar sem þjóðþekktir einstaklingar tala um forvarnir og gildi íþrótta og samveru við foreldra. Síðan unnu nemendur í hópum og svöruðu spurningunum: Hvað vilja unglingar gera með foreldrum sínum? Hvað virkar í forvörnum? og hvaða tómstundir viljum við hafa á Hornafirði?
Afrakstur þessarar vinnu verður hægt að skoða á foreldradaginn 13. nóvember.Að síðustu tóku krakkarnir þátt í ratleik á netinu þar sem glæsileg verðlaun eru í boði. Allar upplýsingar um daginn er hægt að nálgast á slóðinni www.forvarnardagur.is

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica