Uppeldi til ábyrgðar
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir var í dag með fræðslu fyrir starfsfólk og foreldra Grunnskóla Hornafjarðar um Uppeldi til ábyrgðar. Eins og flestum er kunnugt er það hugmyndafræði sem starfsfólk grunnskólans hefur verið að tileinka sér í vetur og ætlar að halda áfram að tileinka sér. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi.
Tilraun var gerð til að halda fræðslufund fyrir foreldra í hádeginu en reynslan af þessum fundi sýnir að það er ekki hentugur tími fyrir foreldra því einungis 10 foreldrar mættu á fundinn. Því verður væntanlega reynt að hafa svipaðan fund síðar og þá að kvöldi til svo fleiri sjái sér fært að mæta.
Starfsfólk gerði góðan róm að heimsókn Guðlaugar Erlu og fannst gott að fá upprifjun og viðbótarfræðslu.



