Fréttir Grunnskóli
2013-01-19-14.28.50-vef hvatningarliðið
2013-01-19-14.28.50-vef hvatningarliðið
Nemendur hvöttu hvern annan eins og framast var á kosið og skipti þá ekki máli hvort þeirra lið var að keppa eða eitthvað annað.
Mynd 1 af 3
1 2 3

Nemendur í 7. bekk stóðu sig frábærlega í legókeppninni

22.01.2013

Á laugardaginn kepptu allir nemendur í  7. bekk í First Legó League keppninni í Háskólabíó. Keppt var í fjórum liðum, níu nemendur í hverju liði og höfðu liðin gefið sér nöfnin, The Smurfs, The Stars, Ice Cool Beans og The Lobsters.  Þema keppninnar í ár var lausnir fyrir eldri borgara og í keppninni eru sigurvegararnir valdir út frá 6 atriðum sem flest tengjast þemanu. Þessi atriði eru;

1.       Hvernig liðið kynnir rannsóknarverkefnið og svara spurningum dómara.

2.       Hvernig liðið kynnir dagbókina sína og svarar spurningum dómara en dagbókin segir nokkuð til um þá vinnu sem liðið hefur lagt í undirbúning.

3.       Hvernig liðið smíðar og forritar róbóta og svara spurningum dómara í tengslum við forritun hans og smíði.

4.       Hversu mörg stig róbótinn hjá liðinu fær á sérstakri þrautabraut. Þetta er að margra mati hápunktur keppninnar en öll liðin fá 3 tilraunir í byrjun og svo fer það eftir árangri hverjir komast í undanúrslit, fjögurra liða úrslit og svo í úrslit. 

5.       Skemmtiatriðið sem hvert lið þarf að leggja fram og þarf reyndar ekki að tengjast þemanu

6.       Liðsheild

Það er skemmst frá því að segja að öll liðin frá Grunnskóla Hornafjarðar stóðu sig með miklum sóma í öllum atriðum og þrátt fyrir að við ættum ekki sigurvegarana í heildarkeppninni þá leið okkur Hornfirðingum sem vorum í Háksólabíó á laugardag samt eins og sigurvegurum þegar öll liðin okkar komust í fjögurra liða úrslit í róbótakeppninni.  The Smurfs unnu svo róbóta hlutann og The Stars unnu smíða forritunar hlutann en lið frá Naustaskóla á Akureyri stóð uppi sem sigurvegari í heildarkeppninni.   

Að keppninni lokinni á laugardag var farið í stutta skoðunarferð í Hörpuna og um kvöldið fór hópurinn í Lazertag og losaði sig við adrenalín dagsins.  Á sunnudag var farið í sund, keilu, bíó og fleira en ferðin endaði á heimsókn í Vísindasmiðju Háskólans og heimsókn í 365 miðla og voru þessar heimsóknir einstaklega vel heppnaðar.

Þetta er í fyrsta sinn sem allur árgangurinn tekur þátt í legókeppninni og miðað við árangurinn þá eru allar líkur á því að sama fyrirkomulag verði áfram á þessari keppni. 

Grunnskóli Hornafjarðar og nemendur í 7. bekk vilja færa eftirfarandi aðilum sérstakar þakkir fyrir stuðning við ferðina en stuðningur þeirra gerði hópnum kleift að komast í ferðina.

Afl stéttarfélag

Landsbanki Íslands

Sigurður Ólafsson ehf

Skinney Þinganes





Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica