7. bekkur keppir í legó
Á morgun 19. janúar keppir 7. bekkur í First Lego League keppninni í Reykjavík. Þetta er í 8. skiptið sem skólinn tekur þátt í þessari keppni en nú er það gert með talsvert öðru sniði. Nú fara allir nemendur bekkjarins í keppnina og keppa í fjórum liðum en fram til þessa hefur einungis eitt 10 manna lið farið. Það ríkir að vonum mikil spenna í hópnum en auk þess að taka þátt í keppninni þá eyða nemendur helginni saman í Reykjavík og á mánudag heimsækja þeir bæði Vísindasmiðjuna í Háskóla Íslands og 365 miðla.
Síðast mánudag var foreldrasýning og á miðvikudag sýndu hóparnir 6. bekkingum um hvað keppnin snýst.



