Fréttir Grunnskóli
1. bekkur og Sparisjóðurinn
1. bekkur og Sparisjóðurinn
Anna Halldórsdóttir og Anna María Ríkharðsdóttir ásamt nemendum í 1. bekk

Jólapakkar til yngstu nemendanna

19.12.2012

Anna Halldórsdóttir og Anna María Ríkharðsdóttir komu í heimsókn og færðu 1. bekkingum jólapakka frá Sparisjóðnum en það er siður sem sjóðurinn hefur haldið í mörg ár.

Það voru glaðir nemendur sem tóku við jólapökkunum og það var mikið spáð í hvað þetta gæti eiginlega verið en tilgátan sem mörgum fannst líklegust var að það  væri sundskýla í pakkanum en hvort það er rétt kemur væntanlega í ljós á aðfangadagskvöld.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica