Nemendur æfa rýmingu skólans
Í síðustu viku æfðu nemendur sig í að rýma skólann. Þessi æfing er gerð til að æfa viðbrögð við eldsvoða og er gerð einu sinni á ári.
Brunakerfi skólans er sett í gang, nemendur fara út með kennurum sínum og hver bekkur mætir á sérstakan stað úti á skólalóðinni. Fulltrúar frá slökkviliðinu mæta og sjá um að allt fari fram samkvæmt áætlun. Í framhaldi af þessu er gott fyrir alla að fara yfir viðbrögð í heimahúsi ef kviknar í og ákveða stað fyrir fjölskylduna að hittast á ef til þess kæmi.


