Fréttir Grunnskóli
Vinaball-035-vef
Vinaball-035-vef
Hildur Ósk, Adisa og Patrycja
Mynd 3 af 14
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14

Vinaball í Sindrabæ

30.11.2012

Í gær héldu nemendur í 8.-10. bekk árlegan fullveldisfagnað í Sindrabæ undir heitinu vinaball enda vinadagur í skólanum í gær. 

Það var mikið um dýrðir í Sindrabæ, salurinn var glæsilega skreyttur af 10. bekkingum sem héldu utan um skemmtunina, purusteikin frá Kaffi Horninu gómsæt, skemmtiatiðin frábær og nemendur allir bæði glæsilegir og til fyrirmyndar að öllu leyti.  Nemendur úr 10. bekk sáu um diskótekið og héldu fólki á dansgólfinu allt þar til yfir lauk. Sá orðrómur gengur á kennarastofunni að starfsfólk hafi hækkað um nokkra sentimetra af stolti yfir nemendum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica