Eldvarnarvika
Þessa vikuna er eldvarnarvika en það er fræðsluvika sem Landsasamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsamanna stendur fyrir og einn liður í henni er að heimsækja 3. bekki í grunnskólum landssins. Í gær komu þeir Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri og Borgþór Freysteinsson eldvarnarfulltrúi í heimsókn og fræddu nemendur í 3. bekk um brunavarnir. Nemendur tóku þátt í getraun og fengu bækur gefins bæði til skemmtunar og fróðleiks auk þess fengu þau vasaljós og límmiða með neyðarnúmerinu 112.



