Dagur íslenskrar tungu
Í dag var haldið upp á dag íslenskrar tungu en hann er haldinn á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Sú hefð hefur skapast hjá Menningarmiðstöðinni og Grunnskóla Hornafjarðar að efna til ljóða og smásagnakeppni í tilefni af deginum. Undirbúningurinn fer þannig fram að nemendur 4. – 10. bekkjar yrkja ljóð eða semja smásögu. Dómnefnd í skólanum velur úr verkunum og þau verk sem komast áfram eru lesin upp á degi íslenskrar tungu í Nýheimum. Menningarmiðstöðin skipar dómnefnd sem velur þrjú bestu verkin og fá höfundarnir viðurkenningarskjal. Flestir höfundarnir lásu sjálfir verkin sín en nokkrir fengu félaga sína til að lesa fyrir sig. Dómnefndina skipuðu þau Svava Herdís Jóndóttir, Júlía Þorsteinsdóttir, Sigurður Hannesson og Fanney Björg Sveinsdóttir. Eftir upplesturinn spilaði hljómsveitin Græna vespan tvö lög fyrir samkomugesti.


